Fréttir

INNTÖKUPRÓF GRUNNSKÓLADEILDAR

 

Þá er inntökupróf grunnskóla afstaðið en við minnum á að hægt er að koma í prufutíma á 1. og 2. stigi. Frá 3. - 18. sept. verða prufutímar fyrir börn fædd 2000 (10 ára) á þriðjudögum kl. 16:30 - 17:30, föstudögum kl. 14:30 - 15:30 og laugardögum kl. 11:30 - 13:30.

 

Inntökupróf fyrir nýnema í grunnskóladeild (fædd 2001) verður laugardaginn 28.ágúst kl. 10:00  Lesa meira...

23/08/2010 Listdanskólinn mættur á Youtube ....

Jæja - þá er Listdansskólinn kominn með sína eigin Youtube rás og fyrsta myndbandið komið þar inn.  Fylgist með eftir því sem fleiri myndbönd birtast þar inni :)  Lesa meira...

20/08/2010 Nýjasta útgáfa stundaskrárinnar

Með því að smella á linkinn hér fyrir neðan má nálgast nýjustu útgáfu stundaskrárinnar eins og henni var breytt í dag 20.ágúst eftir skólasetningu :)

STUNDASKRÁ

UPPHAF KENNSLU GRUNNSKÓLADEILDAR

Kennsla hefst í grunnskóladeild mánudaginn 23.ágúst samkvæmt stundatöflu en þær verða sendar til nemenda á rafrænu formi um miðjan mánuðinn.

SKÓLASETNING FRAMHALDSDEILDAR

Skólasetning framhaldsdeildar verður föstudaginn 20. ágúst kl. 15:00.  Boðið  verður  upp á pilates- og bodyconditioning-tíma  eftir skólasetninguna þannig að nemendur ættu að taka með sér æfingaföt.
Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá mánudaginn 23.ágúst

Stundatafla haustannar verður send rafrænt til allra nemenda skólans upp úr miðjum ágúst.

26/07/2010 DANSANDI DRENGIR Í KASTLJÓSINU

Þeir tóku sig vel út drengirnir okkar dansandi í Kastljósinu í kvöld en einnig mátti sjá stúlkur úr hópnum Móanóra dansa með piltunum

Upptöku úr Kastljósinu má skoða HÉRNA

08/06/2010 MÓANÓRA DANSTRÍÓ

Það eru ekki bara piltar úr Listdansskólanum sem ætla að skemmta borgarbúum með dansi í sumar heldur hafa 3 stúlkur í framhaldsdeildinni einnig hafið störf undir "Skapandi sumarstörf" hjá Hinu Húsinu.  Lesa meira...

07/06/2010 FRÉTTABRÉF LISTDANSSKÓLA ÍSLANDS

Út er komið fréttabréf Listdansskóla Íslands þar sem stiklað er á stóru á starfsárinu 2009-2010 Fréttabréfið má nálgast með því að smella HÉRNA

1/06/2010 ÚTSKRIFT NEMENDA Í FRAMHALDSDEILD

Þriðjudaginn 1.júní var komið að tímamótum hjá 4 stúlkum í framhaldsdeild - útskrift !

útskriftarnemendur vor 2010

Þær sem hér um ræðir eru Alexandra Litaker, Elín Signý Ragnarsdóttir, Eygló Ásta Þorgeirsdóttir og Gígja Jónsdóttir, allt mjög skapandi einstaklingar sem eflaust eiga eftir að setja mark sitt á listalíf okkar hérna á Íslandi. Kennarar og starfsfólk Listdansskóla Íslands óska þeim öllum til hamingju með áfangann og alls velfarnaðar í því sem þær taka sér fyrir hendur.

31/05/2010 BÍÓ BÍÓ BÍÓ

Þriðjudaginn 1.júní klukkan 17:30 verður bíósýning í bókasafni Listdansskólans.

Sýndar verða dansstuttmyndir sem nemendur á 3ja ári framhaldsdeildar hafa gert núna á vormánuðum.

Aliir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

 

Syndicate content